Nýja N1-kortið er byltingarkennd nýjung fyrir neytendur. Á fyrri hluta ársins 2011 var lögð áhersla á að kynna fólki fjölmargar leiðir til að njóta ávinnings af notkun þess.
Gerðar voru einfaldar sterkar, grafískar útfærslur í prenti þar sem kortið tók á sig ólíkar myndir og sjónvarpsauglýsing þar sem Vala Guðna útlistaði kosti kortsins. Sævar Guðmundsson leikstýrði.
Á síðari hluta ársins 2011 var aðaláherslan lögð á nýja N1 appið, sem er hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og gerir viðskiptavinum N1 kleift að kaupa eldsneyti með símanum sínum.
Reynir Lyngdal leikstýrði sjónvarpsauglýsingum þar sem Björn Bragi Arnarsson úr Týndu kynslóðinni sýndi hvað þetta einfalda snjallsímaforrit virkar vel.
Fíton
Sími 595 3600
Sætún 8, 105 Reykjavík