Búðu þig undir veisluna
Það er fátt notalegra en að hjúfra sig að þeim sem maður elskar á köldu vetrarkvöldi. Haustið 2011 varð uppi fótur og fit og eftirspurn eftir sófum rauk upp, menn sáust bera sófa á ólíklegustu stöðum, sófum var hlaðið á bíla og jafnvel komið fyrir á götuhornum. Ástæðan var sú að vetrardagskrá Stöðvar 2 hefur aldrei verið meira spennandi en á þessu 25 ára afmælisári og áskrifendur hugsuðu sér gott til glóðarinnar í sófanum á síðkvöldum.
Til baka í verkefni