KAABER-HÚSIÐ

kaaber_img

Kaffibrennsla O. Johnson & Kaaber hf. var stofnuð árið 1924

Árið 1946 reisti O. Johnson & Kaaber nýtt verksmiðjuhús við Sætún fyrir kaffibrennslu og aðra starfsemi. Kaffibrennsla var starfrækt í þessu fallega húsi fram eftir 7. áratug síðustu aldar en  var síðar nýtt undir lager o.fl. Það hafði staðið autt í mörg ár þegar Fíton flutti í Kaaber-húsið 1. júní 2011 og nú rúmast öll auglýsingastofan á einni hæð hússins.

Í húsinu eru einnig fyrirtæki sem tengjast Fíton náið. Saman mynda þau krafthús í boðmiðlun hreyfimyndasmiðjan Miðstræti, birtinga- og rannsóknafyrirtækið Auglýsingamiðlun og vefstofan Skapalón. Verkefni þessara fyrirtækja gefa tilefni til samstarfs á fjölmörgum sviðum og nálægð þeirra hvert við annað auðveldar það samstarf enn frekar. Fjöldi starfsmanna þessara fyrirtækja er samanlagt 65. Í risi Kaaber-hússins er aðsetur Fréttatímans.

FYRIRTÆKIN Í HÚSINU

Fíton

Sími 595 3600

Sætún 8, 105 Reykjavík